Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur listamanna úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustu samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum. Ár hvert ferðast hluti þessa hóps með Listalest LHÍ til grunnskóla um landið og heldur vinnusmiðjur fyrir unglingastigið (8.-10. bekk) þar sem áhersla er lögð á samruna listgreina.
Listveitan þakkar kærlega þessum stóra hópi listamanna fyrir að deila þessu með okkur hér og býður kennurum um land allt að nota og njóta.
Fyrir hverja smiðju er myndband sem sýnir verkferil hverrar smiðju. Fyrir neðan hvert myndband fylgir kennsluáætlun sem opnast með því að smella á myndirnar.
Nýlegar athugasemdir