Listalest LHÍ 2021

Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur listamanna úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustu samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum. Ár hvert ferðast hluti þessa hóps með Listalest LHÍ til grunnskóla um landið  og heldur vinnusmiðjur fyrir unglingastigið (8.-10. bekk) þar sem áhersla er lögð á samruna listgreina.

Vorið 2021 varð Listalestin að fresta för sinni sökum COVID-19 samkomubannsins og útbjuggu listkennslunemendur í staðinn 16 listasmiðjur með kennsluáætlunum sem eru hér fyrir neðan 

Listveitan þakkar kærlega þessum stóra hópi listamanna fyrir að deila þessu með okkur hér og býður kennurum um land allt að nota og njóta.

Völundarhús listsköpunarinnar

Sjónlistir og tónmennt

Sjálfsmynd / selfie

Ljósmyndun og líkamstjáning

Mandala

Sjónlistir, náttúrufræði, útikennsla og stærðfræði.

Sköpun sem slökun

Tónlist og sjónlistir

Gullplatan

Samfélagsfræði, myndlist og tónlist

Fundnir hlutir í umhverfinu

Sjónlistir

Tónar náttúrunnar

Tónlist, leiklist, ljósmyndun, myndlist, náttúrufræði og upplýsinga- og tæknimennt

Mynd í leiklist

Leiklist og myndlist

Fákasmiðja

Textílmennt, hönnun, tálgun, útikennsla, náttúrufræði

Áferð náttúrunnar og furðuverur

Myndlist og umhverfisfræði

Heimsmarkmið -
aðgerðir í loftslagsmálum

Tónlist, samfélagsfræði, náttúrufræði og upplýsinga- og tæknimennt.

Flæði í hreyfingu og mynd

Leiklist og ljósmyndun

Stuttmyndagerð -
handrit / storyboard

Kvikmyndagerð og sjónlistir

Brúum bilið

Listkennsla og lífsleikni

Höggmynda- og ljóðasmiðja

Textílmennt, grafísk hönnun, myndlist, leiklist, íslenska o.fl.

Ljósmyndasögur

Ljósmyndun og frásagnarlist

Scroll to top