Listalest LHÍ 2026

Deila

Listalestin er samstarfsverkefni List fyrir alla, Listaháskóla Íslands, listkennsludeildar Listaháskóla Íslands og grunnskóla á landsbyggðinni. Listalestin heldur þverfaglegar vinnusmiðjur fyrir ungmenni í grunnskólum þar sem áhersla verður lögð á samruna listgreina.
Verkefnið kemur til með að mótast og þróast í samstarfi við listgreinakennara sem og aðra kennara í viðkomandi skólum og munu nemendur listkennsludeildar vinna í samstarfi við þá.
Afurðir vinnusmiðjanna eru svo verða settar upp sem listasýning undir leiðsögn sýningastjóra.

Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur fólks úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
Listalest LHÍ samanstendur af hópi listkennslunema og hefur sá hópur stækkað og dafnað síðustu ár. Þar er saman kominn hópur fólks úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.

Í ár ferðaðist Listalestin til Sjálanandsskóla í Garðabæ og hélt vinnusmiðjur fyrir 1. – 10. bekk og var afraksturinn sýndur í Sjálandsskóla og við þökkum þeim frábært samstarf.
Sýningarstjóri var Tinna Guðmundsdóttir.

Smiðja 1 - Hljóðórói

Smiðja 2 - Ef ég væri blóm

Smiðja 3 - Risasmár

Smiðja 4 - Poppfangarar

Smiðja 5 - Samhljómur

Smiðja 6 - Samhljómur

Smiðja 7 - Draumaeyjan

Smiðja 8 - Lifandi veggmynd

Smiðja 9 - Tilraunastofa náttúrunnar

Smiðja 10 - Að mála með hljóði

Smiðja 11 - Myndasögur náttúrunnar

Smiðja 12 - SpunaSalíbuna

Reviews for Listalest LHÍ 2026

There are currently no reviews for Listalest LHÍ 2026
Scroll to top