Listalest LHÍ 2023

Deila

Listalest LHÍ 2023

Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur listamanna úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustu samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum. Ár hvert ferðast hluti þessa hóps með Listalest LHÍ til grunnskóla um landið  og heldur vinnusmiðjur fyrir unglingastigið (8.-10. bekk) þar sem áhersla er lögð á samruna listgreina. Að þessu sinni fór Listalestin til Hvammstanga. Sýningarstjóri var Tinna Guðmundsdóttir.
Listveitan þakkar kærlega þessum stóra hópi listamanna fyrir að deila þessu með okkur hér og býður kennurum um allt land að nota og njóta. 

Fyrir hverja smiðju er myndband sem sýnir ferli hverrar smiðju og fyrir neðan hvert myndband fylgir kennsluáætlun sem opnast með því að smella á myndirnar.

 

Töfraverusmiðja

Myndasögur XXL

Litapallettan mín

Hitt ÉG

Hreyfing og textíll

Lagasmíða og spunasmiðja

Reviews for Listalest LHÍ 2023

There are currently no reviews for Listalest LHÍ 2023
Scroll to top