Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur listamanna úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustu samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum. Ár hvert ferðast hluti þessa hóps með Listalest LHÍ til grunnskóla um landið og heldur vinnusmiðjur fyrir unglingastigið (8.-10. bekk) þar sem áhersla er lögð á samruna listgreina. Að þessu sinni fór Listalestin til Hvolsvallar.
Sýningarstjóri var Þorsteinn Freyr Fjölnisson.
Listveitan þakkar kærlega þessum stóra hópi listamanna fyrir að deila þessu með okkur hér og býður kennurum um allt land að nota og njóta.
Hægt er að horfa á afraksturinn hér bæði á íslensku og einnig á ensku.
List fyrir alla
Lækjargata 3
101, Reykjavík
+354 789-0749
info@listfyriralla.is
Reviews for Listalest LHÍ 2024