Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er saman kominn hópur listamanna úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustu samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum. Ár hvert ferðast hluti þessa hóps með Listalest LHÍ til grunnskóla um landið og heldur vinnusmiðjur fyrir unglingastigið (8.-10. bekk) þar sem áhersla er lögð á samruna listgreina.
Vorið 2021 varð Listalestin að fresta för sinni sökum COVID-19 samkomubannsins og útbjuggu listkennslunemendur í staðinn 16 listasmiðjur með kennsluáætlunum sem eru hér fyrir neðan
Listveitan þakkar kærlega þessum stóra hópi listamanna fyrir að deila þessu með okkur hér og býður kennurum um land allt að nota og njóta.
List fyrir alla
Lækjargata 3
101, Reykjavík
+354 789-0749
info@listfyriralla.is