Skapalón – Fatahönnun

Spila
Deila

Í þessum fyrsta þætti er sjónum beint að fatahönnun. Viðmælendur eru fatahönnuðirnir Linda Björg Árnadóttir, Arnar Már Jónsson og Gunnar Hilmarsson. 

Skapalón eru þættir um hönnun og arkitektúr fyrir ungt fólk. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og List fyrir alla hlutu styrk úr Barnamenningarsjóði og fengu RÚV og 101 Production til liðs við sig við framleiðslu þáttanna.
Þáttunum er ætlað að höfða til ungmenna þar sem ljósi er varpað á ólíkar hönnunargreinar með aðgengilegum og áhugaverðum hætti. Þættirnir eru fjórir talsins og voru sýndir á RÚV á þriðjudagskvöldum í maí 2022. Þættirnir eru frumlegir og ferskir og gefa áhorfendum áhugaverða og skemmtilega sýn inn í störf hönnuða og hvernig hönnun og arkitektúr hefur áhrif á allt líf okkar. Nám í hönnun og arkitektúr nýtur vaxandi vinsælda meðal ungs fólks og mikilvægt að þættirnir veiti góða innsýn inn í stöðu hönnunar hér á landi, og nýtist nemendum og kennurum, sem innblástur, námsefni og heimild.

Reviews for Skapalón – Fatahönnun

There are currently no reviews for Skapalón – Fatahönnun
Scroll to top